Fjöldi kvenna tekur þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ sem haldið er víða um land í dag og raunar einnig utan landsteinanna. Að venju kom stór hópur kvenna á öllum aldri saman í Garðabæ til að taka þátt í hlaupinu þar, sem jafnan er fjölmennasta hlaupið.
Mikil gleði ríkti meðal þátttakenda.
Fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið 30. júní árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ, en þær konur sem voru í undirbúningsnefnd fyrsta Kvennahlaupsins höfðu haft kynni af Kvennahlaupinu í Finnlandi sem haldið var árið 1984.