Einn fluttur á slysadeild

mbl.is/Ófeigur

Einn hefur verið fluttur á slysadeild eftir umferðarslys á Reykjanesbraut fyrir ofan Lækjargötu í Hafnarfirði.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan átta í morgun.

Lögreglan í Hafnarfirði segir að lögreglan sé að störfum á vettvangi ásamt sjúkraliði.

Miklar tafir hafa orðið á umferð vegna slyssins. 

Hvorki lögreglan né slökkviliðið gátu gefið upplýsingar um tildrög slyssins. Samkvæmt heimildum mbl.is var bifreið ekið á móti umferð á miklum hraða. 

Uppfært kl. 9.30:

Níu bílar eru skemmdir eftir slysið, að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Verið er að mynda á vettvangi og beðið er eftir því að svæðið verði hreinsað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert