Þjóðin fylgdist spennt með fyrri hálfleiknum í leik Íslands og Nígeríu. Margir gáfu sér þó tíma til að taka augun af skjánum annað veifið og tísta um það sem fyrir augu bar í Volgograd eða annað tengt leiknum mikilvæga.
Staðan er enn 0-0 eins og væntanlega allir vita, en Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður íslenska liðsins, hefur átt nokkrar frábærar fyrirgjafir og hlotið lof netverja fyrir.
Byrjum yfirferðina af Twitter á þessari ótrúlegu staðreynd frá hagfræðingi Viðskiptaráðs Íslands.
Á hverjum degi fjölgar Nígeríumönnum um tæplega 14 þúsund manns, eða sem nemur samanlagt Mosfellsbæ og Vestmannaeyjum #fotboltinet
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) June 21, 2018
Fólk er að horfa á leikinn á ýmsum stöðum og Hildur Lilliendahl er á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn og virðist bara ætla ná fyrri hálfleiknum, nema hún ef til vill hafi gripið til þess ráðs að hringja sjálf inn sprengjuhótun.
Ég er á Kastrup með mjög mörgum Íslendingum og WOW þykist ætla að fljúga með okkur til KEF eftir nákvæmlega klukkutíma. Eru í alvöru ekki enn komnar neinar sprengjuhótanir? #isl #hm2018
— Hildur ♀ (@hillldur) June 22, 2018
Stuðningur íslenskra stuðningsmanna á Volgograd Arena skilar sér vel heim í stofur landsmanna.
Ok þetta HÚH er á einhverju öðru leveli!!! Blessi ykkur öll þarna hafið bláa hafið í flugnagers-vanillu-40gráðu stúkunni! #hmruv #fyririsland #nigisl #nigice
— Fanney Birna (@fanneybj) June 22, 2018
það eru svo margir íslendingar á vellinum að ég er búin að þekkja einhvern í hverju skoti af áhorfendaskaranum
— Heiður Anna (@heiduranna) June 22, 2018
Nei ég meina þetta víkingaklapp er gjörsöm scenes!!!! #HÚH
— Jói Skúli (@joiskuli10) June 22, 2018
Stemningin er gríðarlega góð við íslenska sendiráðið í Köben, að sögn ritara Sjálfstæðisflokksins.
Horfi á leikinn hjá íslenska sendiráðinu í Danmörku 🇩🇰. Gríðarleg stemning. Danski lýsandinn talar m.a. um Rúrik og “Instagram profilen”. #fyririsland #worldcup pic.twitter.com/bbOD7xwheF
— Áslaug Arna (@aslaugarna) June 22, 2018
En það er líka gott að vera í Reykjavík, segir Dagný.
Mér finnst æði að vera í Reykjavík í dag. Allir svo glaðir og peppaðir, einhver falleg samkennd. Við erum bara alveg ágæt.
— Dagny Aradottir Pind (@dagnyara) June 22, 2018
Þetta er fimmaurabrandari fyrri hálfleiksins. Bravó Trausti.
Ef við náum að setja Musa í rangstöðugildru er það þá Musagildra? #neisegisvona
— T. Sigurður d’Hauganesz (@Traustisig) June 22, 2018
Leikurinn hefur kannski heilt yfir verið bragðdaufur en Birkir Már Sævarsson hefur vakið aðdáun netverja fyrir frábærar fyrirgjafir sínar af hægri vængnum.
Beckham hver Birkir Mar take a bow son #hmruv
— Arnar Skúli Atlason (@Skulsen) June 22, 2018
Birkir Már er að vinna með betri fyrirgjafir en flestir hægri bakverðir í PL. Hörður er líka orðinn virkilega tidy vinstri bakvörður. Ekki ein tilraun hjá Nígeríu í hálfleik. Amen.
— dagurbollason (@DagurBollason) June 22, 2018
Birkir Már Sævarsson er besti fótboltamaður sem ég hef séð.
— Stígur Helgason (@Stigurh) June 22, 2018