Lögreglan á Suðurlandi hefur lokið við rannsókn á vettvangi sumarbústaðarins þar sem eldur kom upp í nótt. Rannsókninni er þó ekki lokið og er lögregla ekki tilbúin að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Tilkynnt var um eldsvoða í sumarbústað á Búrfellsvegi í Grímsnesi til Brunavarna Árnessýslu rétt fyrir klukkan fimm í nótt en fjórir voru í bústaðnum þegar eldurinn kom upp og komust þeir út af sjálfsdáðum.