Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nú að störfum við Bryggjuhverfi í Grafarvogi, eftir að tilkynning barst um að þar væri flík í sjónum.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu virðist vera sem um blautgalla sé að ræða. Slökkviliðið sendi bát á svæðið og er að skoða málið betur. Ekki hefur sést til manneskju í sjónum.
Uppfært klukkan 18:45: Aðgerðum slökkviliðs í Bryggjuhverfinu er lokið. Flíkin, flotgalli, var fjarlægð úr sjónum. Ekki þótti ástæða til að ætla að manneskja hefði farið í sjóinn.