Bíll með hjólhýsi í afturdragi fauk út af Vesturlandsvegi á Kjalarnesi á sjötta tímanum í kvöld. Enginn slasaðist en hjólhýsið er illa farið, brotið að framan og dót fokið úr því.
Ökumaður og kona hans voru á leið út úr bænum þegar snörp vindhviða feykti bílnum yfir á öfugan vegarhelming og þaðan út í vegkant.
Nokkuð hvasst er á Kjalarnesi og hefur vindur farið yfir 20 metra á sekúndu í hviðum.