Á morgun, laugardaginn 21. júlí, hefst uppsteypa brúargólfs nýrrar göngubrúar yfir Breiðholtsbraut milli Seljahverfis og Fellahverfis. Framkvæmdir hefjast klukkan 7:30 og gert er ráð fyrir að þeim ljúki klukkan 14:30 sama dag.
Í frétt frá Vegagerðinni kemur fram að á meðan framkvæmdir standa yfir verður Breiðholtsbraut lokuð milli gatnamóta Seljaskóga og Jaðarsels ásamt því að aðgangur frá Norðurfelli verður lokaður.
Vegfarendum er bent á hjáleið um Seljabraut og að fylgjast með vegmerkingum.
Hér er kort sem sýnir lokanir og hjáleiðir.