Karlmaður sem var handtekinn á Svalbarðseyri aðfaranótt laugardags eftir að hann ógnaði fólki með pinnabyssu var á reynslulausn þegar málið kom upp. Hann var leiddur fyrir dómara í dag sem úrskurðaði að maðurinn skyldi færður á ný í fangelsi til að afplána eftirstöðvar dóms síns.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Lögreglunni barst tilkynning um klukkan þrjú aðfaranótt föstudags um mann á Svalbarðseyri sem hefði sést handleika vopn á almannafæri. Maðurinn var í annarlegu ástandi en sýndi ekki mótspyrnu og fannst vopnið í fórum hans. Hann var fluttur í fangageymslu en ekki tókst að yfirheyra hann strax.
Rannsókn málsins leiddi í ljós að hann ógnaði að minnsta kosti tveimur mönnum með svokallaðri pinnabyssu, skammbyssu notuð til að aflífa stórgripi. Byssuna er hann grunaður um að hafa tekið ófrjálsri hendi í húsi á Svalbarðseyri. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er einnig grunaður um önnur þjófnaðarbrot og eru þau mál til rannsóknar en rannsókn málsins er langt komin.