Hafa veitt 58 langreyðar

Hvalur 9 dregur tvær langreyðarkýr á land.
Hvalur 9 dregur tvær langreyðarkýr á land. Rax / Ragnar Axelsson

Hvalveiðar hefur gengið ágætlega í sumar en það sem af er ári hafa veiðst 58 langreyðar. Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í Hvalstöðinni í Hvalfirði, segir að mikið dimmviðri hafi verið það sem af er sumri og það hafi torveldað veiði.

„Veiðin fer auðvitað alveg eftir veðri og vindum. Það hefur verið mikil þoka og dimmviðri í sumar. Það gerir okkur talsvert erfiðara fyrir enda er þetta sjónveiði,“ segir Gunnlaugur og bætir við að Hvalur hf. hafi heimild til að veiða tæplega 200 dýr á þessu ári og því sé af nægu að taka.

„Við erum langt frá því að fylla kvótann enda er hann í raun ótakmarkaður,“ segir Gunnlaugur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert