Í dag stendur til að fræsa báðar akreinar til vesturs á Suðurlandsvegi, um 2,1 km á milli vegamóta við Þrengslaveg og Litlu kaffistofunnar. Akreinunum verður lokað á meðan og umferð færð yfir á öfugan vegarhelming. Áætlað er að vinnan standi til klukkan 19:00.
Í frétt á vef Vegagerðarinnar segir að einnig eigi að malbika báðar akreinar á um tveggja kílómetra kafla á Hellisheiði til vesturs, vestan við Hellisheiðarvirkjun. Loka þarf akreinunum á meðan og því verður umferð beint úr hringtorginu við Hveragerði til suðurs og síðan um Þrengslin. Áætlað er að þessi vinna standi yfir til miðnættis.