Tveir á slysadeild eftir bílveltu

mbl.is/Hjörtur

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir bílveltu á Reykjanesbraut til móts við Innri-Njarðvík um þrjúleytið í dag.

Alls voru fjórir í bílnum og kastaðist einn þeirra út úr honum.

Þeir sem voru ekki fluttir á slysadeild fóru til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli fólksins eru, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert