Tveir af fjórum leikjum Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildar karlalandsliða í knattspyrnu verða í opinni dagskrá. Þetta segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri miðla Vodafone, en Þjóðadeildin verður að öðru leyti í lokaðri dagskrá á Stöð 2 Sport.
Björn segir það hafa legið fyrir lengi að Þjóðadeildin verði sýnd á Stöð 2 Sport, þar sem gengið hafi verið frá sýningarréttinum fyrir ári.
Ekki liggur fyrir hvaða leikir Íslands verða í opinni dagskrá, en fyrsti leikur Íslands verður á móti Sviss 8. september og síðan á móti Belgíu 11. september.