Húsflutningur frá Selfossi til Hellu í nótt gekk vel, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra lögreglunnar á Selfossi. Hann sagði að þetta væri einföld aðgerð sem hefði verið framkvæmd oft áður án þess að tilkynnt hafi verið um hana á Facebook.
Lögreglan á Suðurlandi birti einmitt tilkynningu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi þar sem vegfarendum var bent á að þeir gætu búist við töfum vegna flutnings húss.
Vegaköflum á Suðurlandsvegi var lokað á meðan húsið var flutt þar um en samkvæmt varðstjóra kom ekkert upp á. Umferð á þessum tíma, milli miðnættis og fjögur að nóttu, er að hans sögn mjög lítil.
Húsið er komið á sinn stað á Hellu.