Lögreglan leitar Jónasar

Lögreglan birti þessa mynd af Jónasi Þór á Facebook-síðu sinni.
Lögreglan birti þessa mynd af Jónasi Þór á Facebook-síðu sinni.

Lögreglan á Suðurlandi leitar að Jónasi Þór. Síðast sást til hans á höfuðborgarsvæðinu. 

Í tilkynningu á facebooksíðu lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að Jónas sé klæddur í bláar stórar gallabuxur, svarta íþróttaskó, svarta hettupeysu með hvítum stöfum á og með rauðan bakpoka. Jónas er um 165 cm á hæð, ljóshærður með úfið hár.

Þeir sem hafa séð til ferða Jónasar eða vita hvar hann er að finna eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert