Drógu vélarvana skemmtibát í land

Mynd/Björgunarsveitin Ægir

Í kvöld barst neyðarkall frá vélavana skemmtibáti í Eyjafirði og fór hópur frá björgunarsveitinni Ægi í Grenivík á staðinn. Tóku þeir bátinn í tog og drógu hann til hafnar á Svalbarðseyri þar sem honum var komið upp á land. Á Facebook-síðu Ægismanna segir að veður hafi verið með besta móti og aðgerðin hafi gengið vel.

Mynd/Björgunarsveitin Ægir
Mynd/Björgunarsveitin Ægir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert