Mánudaginn 24. september hefst viðgerð á brú yfir Vesturlandsveg við Leirvogstungumel og verður umferð af Vesturlandsvegi færð á hjáleið meðan á viðgerð stendur. Viðgerðin mun standa yfir í 4 daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.