Fjórir voru fluttir slasaðir á sjúkrahús eftir umferðarslys þar sem bifreið var ekið á kyrrstæðan lögreglubíl sem var staðsettur utan vegar við Sandskeið. Atvikið átti sér stað skammt vestan við Bláfjallaafleggjara. Suðurlandsvegur við Bláfjallaveg er lokaður í vestur vegna umferðarslyss og verður umferð beint inn á Bláfjallaveg til Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru tveir hinna slösuðu minna slasaðir. Fjórir sjúkrabílar og tveir dælubílar frá slökkviliði voru sendir í útkallið, en fyrstur á vettvang var sjúkrabíll sem var á leið til Reykjavíkur frá Selfossi.
Umferð kemst austur en búast má við truflun vegna umferðarstýringar og vinnu á vettvangi að sögn lögreglu.
Uppfært 16:22
Búið er að opna Suðurlandsveginn við Sandskeið að nýju fyrir umferð.