„Sniðugt að gera þetta hundrað sinnum“

Hafdís, klætt í rautt, og vinkonur hennar voru kátar eftir …
Hafdís, klætt í rautt, og vinkonur hennar voru kátar eftir göngu dagsins. Ljósmynd/Aðsend

Það var 6. mars í fallegu vetrarveðri sem Hafdísi Guðrúnu Hilmarsdóttur, þá í annarri Esjuferð ársins, datt í hug að fara hundrað sinnum á Esjuna á árinu. Í dag fór hún hundruðustu ferðina, en ekki þá síðustu á árinu.

„Ég ákvað í algjöru bjartsýniskasti í Esjugöngu 6. mars að það gæti verið rosalega sniðugt að gera þetta hundrað sinnum á árinu,“ segir Hafdís í samtali við mbl.is og hlær. Gönguferðirnar voru þó ekki bara „út í loftið“ heldur voru þær liður í undirbúningi Hafdísar fyrir mikla þrekraun í Ölpunum.

„Í febrúar skráði ég mig í 95 kílómetra hlaup í frönsku Ölpunum sem fór fram í lok ágúst. Ég ákvað að vera dugleg að fara á Esjuna í aðdraganda þess.“

Hafdís og Jóda Elín Val­gerður Mar­grét­ar­dótt­ir hlupu 95 km hlaup með 5.500 metra hækk­un í Ölpunum 25. ágúst og Halldóra Gyða Matth­ías­dótt­ir Proppé hljóp 169 km hlaup með 11.000 metra hækk­un.

Haf­dís hafnaði í fyrsta sæti í sín­um ald­urs­flokki en hún tók þátt í 95 km hlaupi sem hún kláraði á 18 klukku­stund­um, sjö mín­út­um og 22 sek­únd­um.  Í hlaup­inu var m.a. farið um fjallat­ind­ana Sous l‘Echail­len, Grand Colon og Chamechau­de.  

Á eftir að fara fleiri ferðir

Fyrir afrekið í Ölpunum hafði Hafdís farið 89 sinnum á Esjuna á árinu. „Ég fór 50. ferðina í lok maí og þá var nokkur hópur fólks sem vildi koma með. Sama var uppi á teningnum í dag en það voru um 50 manns með mér í hóp í dag,“ segir Hafdís sem er himinlifandi með daginn:

„Þetta var ótrúlega skemmtilegt.“

Hópurinn sem fór í 100. göngu Hafdísar á Esjuna í …
Hópurinn sem fór í 100. göngu Hafdísar á Esjuna í dag. Ljósmynd/Aðsend

Þrátt fyrir að hafa lokið 100 ferðum upp að steini á Esjunni á árinu segist Hafdís ekki vera hætt. „Ég á eftir að fara fleiri ferðir, ég á eftir að fara ansi oft í viðbót,“ segir Hafdís og hlær þegar hún er beðin um nýtt markmið yfir Esjuferðir ársins:

„Ég ætla ekki að segja neitt svoleiðis.“

Hafdís vill auk þess benda á undirskriftasöfnun þar sem Reykjavíkurborg er hvött til þess að koma almenningssalerni fyrir við Esjurætur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert