Banaslys á Reykjanesbraut

mbl.is

Banaslys varð á Reykjanesbraut á sjötta tímanum í morgun í hörðum árekstri á milli jepplings og fólksbifreiðar. Varð slysið til móts við Vallahverfið í Hafnarfirði, snemma í morgun.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 5.44. Bílarnir komu úr gagnstæðum áttum. Hinn látni var farþegi í öðrum bílnum en hann var fluttur á Landspítalann og úrskurðaður látinn við komuna þangað.

Báðir ökumennirnir voru sömuleiðis fluttir á slysadeild en talið er að þeir séu ekki alvarlega slasaðir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert