Þrír unnu rúman milljarð

AFP

Þrír heppnir vinningshafar eru sem nemur rúmlega einum milljarði króna ríkari eftir að dregið var úr EuroJackpo-lottóinu í kvöld, en þeir deila með sér öðrum vinningi kvöldsins. Fyrsti vinningurinn, upp á rúmlega 12,4 milljarða króna, gekk ekki út.

Vinningshafarnir þrír keyptu allir miðana sína í Þýskalandi. Tíu miðaeigendur deildu með sér þriðja vinningi kvöldsins og unnu rúmar 16,6 milljónir króna hver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert