VR fær lóðarvilyrði fyrir 36 íbúðum

Skyggnisbraut í Úlfarsárdal. Þar mun félag á vegum VR byggja …
Skyggnisbraut í Úlfarsárdal. Þar mun félag á vegum VR byggja 36 hagkvæmar leiguíbúðir samkvæmt lóðarvilyrði frá borginni en vilyrðið er bundið þeim skilyrðum að félagið sé rekið án hagnaðarsjónarmiða. Ljósmynd/Aðsend

Borgarráð hefur samþykkt að veita VR lóðavilyrði fyrir lóð ásamt byggingarrétti fyrir 36 íbúðir við í Úlfarsárdal.

Lóðin er á reit C1 við Skyggnisbraut, Gæfutjörn og Silfratjörn í Úlfarsárdal og gerir VR kleift að byggja 36 íbúðir en verkalýðsfélagið hefur lýst því yfir að það vilji standa að uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir félagsmenn sína. VR verður heimilt að byggja tvö fjölbýlishús á reitnum, samtals 3.225 fermetra, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Fram kemur, að lóðarvilyrðið gildi í sex mánuði frá staðfestingu borgarráðs og sé bundið því skilyrði að VR stofni leigufélag sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða með það að markmiði að tryggja húsnæðisöryggi og hagkvæma leigu.

Þá segir, að VR sé heimilt að framselja nýju húsnæðisfélagi lóðarvilyrðið. Nýstofnuðu félagi verði seldur byggingarrétturinn að beiðni VR með ákvörðun borgarráðs. Lóðarhafi skuldbindur sig til þess að selja 5% af heildarfjölda íbúða, ekki færri en tvær íbúðir, til Félagsbústaða og munu aðilar gera með sér samning þar að lútandi. Í samkomulaginu verði ákvarðaðar stærðir, staðsetning, skil íbúða og greiðsluflæði á byggingartíma miðað við framvindu uppbyggingarinnar. Félagsbústaðir muni sækja um stofnframlög vegna þessara íbúða til Íbúðalánasjóðs og Reykjavíkurborgar.

Ef endanlegur samningur um kaupin liggur ekki fyrir innan tveggja mánaða frá úthlutun lóðarinnar fellur hún niður án sérstakrar ákvörðunar og tilkynningar borgarráðs þar um. Verð á fermetra er 45.000 krónur auk gatnagerðargjalds og er upphæðin alls 183 milljónir króna, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert