„Augljós brot á siðareglum“

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna fordæmir ummæli þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins sem látin voru falla á Klaustur bar 20. nóvember.

„Ummælin lýsa kvenfyrirlitningu, fordómum gagnvart fötluðu fólki og samkynhneigðum ásamt því að augljós brot á siðareglum alþingismanna voru framin,“ segir í tilkynningu.

„Þjóðkjörnir einstaklingar eiga að vera fyrirmyndir í þjóðfélaginu en framkoma þessara þingmanna er engum til framdráttar. Stjórn SUF telur ummæli og viðhorf þingmannanna til háborinnar skammar og hvetur þau til þess að segja tafarlaust af sér þingmennsku.“

Fyrr í kvöld sendi Landssamband framsóknarkvenna frá sér ályktun þar sem það fordæmdi ummælin og hvatti þingmennina einnig til að segja af sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert