Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur hætt eftirliti sínu með dekkjakurli í urðunarstöðinni á Álfsnesi sem sinnt hefur verið í dag í kjölfar þess að eldur kom upp á nýjan leik í kurlinu í morgun en áður kom upp eldur í því um helgina.
Til stóð að fylgjast með dekkjakurlinu til klukkan 23:00 ef eldur skyldi koma upp aftur en ákveðið var að hætta eftirlitinu um níuleytið í kvöld þar sem ekki væri þörf á því lengur. Var vettvangurinn afhentur starfsmönnum Sorpu.