Nafngreindur maður vændur um lygar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/​Hari

Efling tekur ásakanir um misnotkun fjármuna félagsins alvarlega,“ segir í yfirlýsingu frá Eflingu þar sem fréttaflutningur DV varðandi mál Rúmena sem störfuðu hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu ehf. er gagnrýndur.

Í frétt DV í gær var rætt við forsvarsmann starfsmannaleigunnar sem sagði fréttir af slæmum aðbúnaði og kjörum rúmenskra starfsmanna rangar. Með fréttinni voru birt skjáskot af bankareikningi, sem sagður var í eigu starfsmanns og sýndi 691 þúsund krónur.

Auk þess kom fram að starfsmennirnir hefðu fengið mataraðstoð frá Eflingu og ASÍ í kjölfar fréttaflutnings. Mennirnir hefðu notað aðstoðina til að kaupa mat sem þeir seldu öðrum Rúmenum.

„Ekki er fótur fyrir þeim fullyrðingum sem koma fram í frétt DV, þar á meðal um ráðstöfun mataraðstoðar félagsins. Þetta hefði legið ljóst fyrir ef mennirnir hefðu fengið að njóta réttar síns til andsvars, eða ef hlutlaus túlkur hefði verið fenginn til að líta yfir gögnin sem fréttin byggir á. Myndband sem fylgir fréttinni rennir engan veginn stoðum undir fréttaflutninginn,“ kemur fram í yfirlýsingu Eflingar.

Þar segir enn fremur að nafngreindur maður sé vændur um lygar og svik í frétt og fyrirsögn, auk þess sem upplýsingar af bankabók hans frá síðasta ári séu opinberaðar. Maðurinn hafi ekki fengið tækifæri til að svara fyrir þessar ásakanir á hendur sér.

Við höfum rætt við hann og fengið að skoða frá honum gögn og bankafærslur. Frásögn hans kemur engan veginn heim og saman við fréttaflutning DV.“

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert