Hroki að hóta þingmönnum

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það gengur ekki að Alþingi, okkur hér 63 þjóðkjörnum fulltrúum sem eigum eingöngu að fylgja lögum og okkar sannfæringu, sé hótað. Það er hroki,“ sagði Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún brást við umræðu þar sem hún hefur verið sökuðu um hroka vegna orða sinna um að verkalýðshreyfingin stjórnaði ekki landinu.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, sagði á sunnudaginn að ef þingmenn ætluðu „að vera svo forhertir í að lifa í sápukúlu og vilja ekki horfa á stóru myndina, stöðu almennings, þá ættu þeir að íhuga stöðu sína“. Það yrði alltaf verkefni verkalýðshreyfingarinnar að hámarka gæði launafólks. Þar gætu stjórnvöld ekki verið stikkfrí. Sakaði hann Bryndísi um hroka í garð hreyfingarinnar.

Bryndís vitnaði á Alþingi í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem rætt væri sérstaklega um mikilvægi þess að sátt ríkti á vinnumarkaði. „Þar eru listuð markmið ríkisstjórnarinnar er lúta t.d. að keðjuábyrgð, kynbundnum launamun, félagslegu undirboði og ýmsu fleira. Vilji meiri hlutans er nefnilega alveg skýr í þessum efnum.“

Margt hefði þegar verið gert. Þar á meðal hækkun barnabóta til þeirra sem lægst hefðu launin og annað væri í farvatninu. Ríkisstjórnin hefði sagt skýrt að svigrúm til skattalækkana yrði nýtt til handa þeim sem lægst hefðu launin.

„Nú stendur yfir alvarleg deila á vinnumarkaði. Það eru tveir aðilar sem deila, annars vegar verkalýðshreyfingin og hins vegar atvinnulífið. Ríkisvaldið er ekki við samningaborðið þrátt fyrir yfirlýstan samstarfsvilja.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert