Sakar Bryndísi um hroka

Kristján Þórður Snæbjarnarson.
Kristján Þórður Snæbjarnarson. mbl.is/Styrmir Kári

Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, formaður Rafiðnaðarsam­bands Íslands, segir að ummæli Bryndísar Haraldsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sýni mikinn hroka. Bryndís sagði á Þingvöllum á K100 í morgun að forysta verkalýðsfélaga stýri ekki landinu.

Bryndís sagði að forysta verkalýðsfélaganna væri fyrst og fremst kjörin til að semja um kjör á markaði við sína viðsemjendur; Samtök atvinnulífsins en ekki ríkið. Þetta sagði Bryn­dís þegar talið barst að til­lög­um ASÍ og Indriða Þor­láks­son­ar um fjölg­un skattþrepa sem lausn á kjara­deil­unni.

Að segja að talsmenn félaga eða samtaka alls um 120.000 einstaklinga hafi ekkert með samfélagið að gera heldur eigi að takmarka sig við afmörkuð verkefni, gera kjarasamninga, en eigi samt að hlýða stjórnvöldum þegar þeir sinna því verkefni,“ skrifar Kristján á vefsíðu Rafiðnaðarsambands Íslands.

Hann segir það meginhlutverk verkalýðsfélaga að semja um kaup og kjör sinna félagsmanna. Hins vegar sé það hvergi þannig að kjarasamningar taki ekki mið af stöðu samfélaga í heild sinni. 

Í hvert skipti sem komið er að því að semja um kaup og kjör þá stökkva stjórnmálamenn iðulega fram og kalla eftir hófsemi og það megi ekki semja á hvaða nótum sem er. Þegar komið er að samningaborðinu þá ber okkur að sjálfsögðu að finna leiðir til þess að hámarka gæðin sem samningarnir geta skilað okkar félagsmönnum,“ skrifar Kristján.

Hann bætir því við að það að auka kaupmátt launa sé mikilvægt skref en að auka ráðstöfunartekjur sé enn mikilvægara.

Ef þingmenn ætla að vera svo forhertir í að lifa í sápukúlu og vilja ekki horfa á stóru myndina, stöðu almennings, þá ættu þeir að íhuga stöðu sína. Það verður alltaf okkar verkefni að horfa á hvernig við getum hámarkað gæði launafólks og þar geta stjórnvöld ekki verið stikkfrí!

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert