Sérsveitin var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna átaka á milli skyldra aðila. Lögreglan á Suðurnesjum segir að atvikið sé fjölskylduharmleikur.
Annar aðilinn var handtekinn en hinn fluttur á sjúkrahús með minni háttar áverka en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er viðkomandi ágætlega haldinn.
Heimilisaðstæður höfðu farið úr böndunum en málið er í rannsókn.