Von á orkupakkanum innan 10 daga

Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvörp vegna þriðja orkupakkans fyrir mánaðamót.
Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvörp vegna þriðja orkupakkans fyrir mánaðamót. mbl.is/Eggert

„Það er auðvitað markmiðið að fara með þau mál og þeim tengd fyrir þann frest,“ svarar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þegar mbl.is spyr hvort ríkisstjórnin hyggist leggja fram frumvarp um þriðja orkupakka Evrópusambandsins áður en frestur til slíks rennur út 30. mars, sem er eftir 10 daga.

Þingflokkar ríkisstjórnarflokkanna funduðu í ráðherrabústaðnum í dag og var það framhald af fundi flokkanna um sama mál í nóvember, að sögn ráðherrans.

„Þingflokkarnir voru meðal annars að ræða þriðja orkupakkann og tengd mál. Ég og Þórdís Kolbrún [R. Gylfadóttir iðnaðarráðherra] vorum að fara yfir þau mál með þingflokkunum þrem,“ útskýrir Guðlaugur.

Spurður um hvað felist í málum sem hann segir tengjast orkupakkanum, segist ráðherrann ekki getað upplýst á þessu stigi nákvæmlega hvert eðli þeirra mála sé.

„Við tókum þessari gagnrýni sem kom fram mjög alvarlega og við höfum verið að nýta tímann til þess að skoða þau mál og meta það. Á þessu stigi er ekki mikið meira um það að segja, annað en það að við frestuðum málinu og höfum verið að skoða það í kjölinn meðal annars með þeim sem hafa gagnrýnt það harðast,“ útskýrir Guðlaugur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert