Úthlutunaráætlun í Skerjafirði samþykkt

Svæðið sem um ræðir liggur að núverandi byggð í Skerjafirði …
Svæðið sem um ræðir liggur að núverandi byggð í Skerjafirði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs og af öryggissvæði flugbrauta til norðurs og austurs. Teikning/Reykjavíkurborg

Úthlutunaráætlun fyrir norðurhluta skipulagssvæðisins í Skerjafirði var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun. Yfir 300 íbúðir eru á vegum húsnæðisfélaga í fyrsta áfanga. 

Svæðið sem um ræðir liggur að núverandi byggð í Skerjafirði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs og af öryggissvæði flugbrauta til norðurs og austurs.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að í rammaskipulagi svæðisins var lögð áhersla á vistvæna byggð sem tekur tillit til náttúru og nær- liggjandi byggðar. Rammaskipulagið sem var unnið af ASK arkitektum, EFLU og Landslagi fékk á dögunum verðlaun frá Skipulagsfræðingafélagi Íslands.  

Á reitum 1-15 er gert ráð fyrir um 750 íbúðum, eða frá 16-88 íbúðum á reit. Íbúðagerðir eru fjölbreyttar; allt frá raðhúsum í nokkuð stór fjölbýlishús. Á þessum hluta er gert ráð fyrir einu bílageymsluhúsi í miðju hverfisins, þar sem einnig er gert ráð fyrir staðsetningu matvöruverslunar á jarðhæð ásamt annarri smásöluverslun og torgi.

Á reitum 1-3 verða seldar minni lóðir með útboðsfyrirkomulagi á sama hátt og í Úlfarsárdal. Þarna gefst smærri aðilum færi á að fá áhugaverðar byggingarlóðir.

Reitur 4 verður seldur í heilu lagi. Það verkefni hentar stærri verktakafyrirtækjum sem hafa kallað eftir slíkum lóðum í sölu.

Reitur 5 fer undir verkefnið „Hagkvæmt húsnæði“ sem snýr að uppbyggingu á íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendum.

Reitur 6 var í rammaskipulagi tekinn undir skólahúsnæði en nú er skoðað að hafa skólann nær sjónum og yrði reitur 6 þá einnig settur á sölu til stærri uppbyggingaraðila eins og reitur 4.

Reitur 7 fer til Félagsstofnunar Stúdenta. FS hefur vilyrði fyrir 160 íbúðum og hefur lýst yfir áhuga á að byggja litlar 3ja herbergja íbúðir 70-80 m² brúttó.

Reitur 8 er bílastæðahús hverfisins þar sem gert er ráð fyrir matvöruverslun og/eða veitingahúsi á jarðhæð.

Reitur 9 fer til Bjargs íbúðafélags sem hefur fengið vilyrði fyrir 100 íbúðum í nýjum Skerjafirði.

Reitur 10 verður seldur til stærri þróunaraðila á sama hátt og reitur 4 og 6.

Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Gert er ráð fyrir að deiliskipulagsvinna verði á hendi borgarinnar, unnin af ASK arkitektum, með aðkomu þróunaraðilanna. Með því verður tryggt að skipulagsvinna geti unnist hratt og örugglega, ásamt því að tryggt er að götur, torg og græn svæði fá skilmerkilega umfjöllun í deiliskipulagi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert