Loftgæði sums staðar á höfuðborgarsvæðinu eru mjög lítil samkvæmt vef Umhverfisstofnunar, Loftgæði.is. Mikið rykmistur liggur yfir höfuðborgarsvæðinu en það er ættað frá Sahara-eyðimörkinni.
Greint var frá því í færslu á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands fyrr í dag að vegna misturs hafi sólin ekki sést jafn vel í Reykjavík og spáð var í gær. Því mælist svifryk meira en venjulega.
Loftgæði eru mjög lítil við mælingastöð Umhverfisstofnunar við Grensásveg. Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að við slíkar aðstæður ættu einstaklingar með alvarlega hjarta- og/eða lungnasjúkdóma að forðast að vera úti þar sem hætta er á mikilli mengun. Fólk ætti að forðast að vinna erfiðisvinnu eða stunda líkamsrækt utandyra.
Auk þess eru loftgæði mjög lítil við mælistöð í Húsdýragarðinum og í Njörvasundi. Loftgæði eru lítil í Dalsmára í Kópavogi.
Eins og kom fram fyrr í dag féll hitamet sumardagsins fyrsta í Reykjavík, þegar hitamælir Veðurstofu Íslands sýndi 14,1 stig. Fyrra met var frá árinu 1998, en þá mældist hiti hæstur 13,5 stig á sumardaginn fyrsta.