Sáttur með rökin frá stjórn Isavia

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segir að honum þyki stjórn Isavia hafa fært ágætisrök fyrir því hvernig hún hélt á málum er varða ógreidd lendingargjöld WOW air á Keflavíkurflugvelli og benti á það, í samtali við mbl.is eftir ríkisstjórnarfund í dag, að óbeinar tekjur af rekstri WOW air frá því flugfélagið lenti í vanskilum við Isavia hafi numið „gríðarlega háum fjárhæðum“.

Bjarni segir að það sé „sjálfsagt að taka það með í reikninginn, vilji menn komast að niðurstöðu með það hvaða áhrif ákvarðanataka stjórnar Isavia hefur haft heilt yfir.“

Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá því í gær kemur fram að Isavia geti ekki krafið bandaríska flugvélaleigufyrirtækið Air Lease Corporation (ALC) um greiðslu um það bil tveggja milljarða sem WOW air skuldaði vegna lendingargjalda á Keflavíkurflugvelli, heldur einungis þann kostnað sem sé beint til kominn vegna þessarar flugvélar,  TF-GPA. Það eru 87 milljónir króna.

Bjarni segir að hann sé ekki kominn með fulla yfirsýn yfir það hvaða afleiðingar þessi úrskurður muni hafa.

„Það virðist vera að það sé einhverri túlkun háð, hver verða næstu skref. Báðir aðilar virðast vera að velta því fyrir sér fyrir sitt leyti hvað gerist næst, þannig að ég held að við verðum aðeins að bíða og sjá hvernig úr þessu spilast, til þess að komast að niðurstöðu um það hvernig maður á að meta stöðuna,“ segir Bjarni.

Upplýsingar um skuldasöfnun WOW air hjá Isavia hafa legið fyrir um lengri tíma og ríkisstjórnin hefur vitað af þeirri stöðu sem var uppi. Aðspurður hvort ríkisstjórninni hafi þótt það eðlilegt hvernig skuldir flugfélagsins fengu að safnast upp hjá Isavia, segir Bjarni:

„Mér finnst að stjórn Isavia hafi fært ágætisrök fyrir því hvernig á málinu var haldið. Þetta er viðskiptaleg ákvörðun sem menn standa frammi fyrir, hvernig eigi að taka á því þegar að viðskiptamenn félagsins standa ekki í skilum og í þessu tilviki var þessi leið farin. Við þekkjum dæmi um það í sögunni að það hafi verið gripið til tryggingaráðstafana gagnvart félögum sem hafa lent í vanskilum. Það er sömuleiðis gert ráð fyrir því í lögum að menn geti gripið til slíkra ráðstafana og um framkvæmd þess var deilt í þessum úrskurði þannig að já, mér finnst að stjórnin hafi fært góð rök fyrir sinni afstöðu og því hvernig tekið var á þessu máli.“

TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá 18. mars.
TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá 18. mars. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

En þegar að stjórnin var að útskýra sína afstöðu og það hvernig var tekið á þessu máli, fylgdi þá ekki sögunni að það væri trygging í formi kyrrsetningar?

„Jú jú, eins og gert er ráð fyrir í lögunum.“

Já, en nú þegar það virðist ekki halda nema upp að vissu marki?

„Það er það sem að við bíðum endanlegrar niðurstöðu með. Mér sýnist, meðal annars af fréttum í gær, að það sé einhverjum vafa undirorpið hvernig úr því muni spilast. En að sjálfsögðu, ef að lög eru eitthvað óskýr um þetta efni kallar það á viðbrögð og það getur verið viss skellur, en á móti kemur, til dæmi, að óbeinar tekjur af rekstri flugfélagsins WOW frá því að það lenti í vanskilum nema gríðarlega háum fjárhæðum sem er sjálfsagt að taka með í reikninginn, vilji menn komast að niðurstöðu með það hvaða áhrif ákvarðanataka stjórnar Isavia hefur haft heilt yfir.“

Hvað með samkeppnisaðilann Icelandair, sem hefur kvartað yfir því að það sé ekki rétt að ríkisfyrirtæki komi inn í stöðuna með þessum hætti, með því að leyfa skuldasöfnun af þessu tagi?

„Það er engin ákvörðun sem er tekin hjá stjórn Isavia að viðskiptamenn þeirra lendi í vanskilum, heldur er það einhver staðreynd sem menn standa frammi fyrir, það er ekki ákvörðun um lánveitingu eða ríkisstyrk, heldur er það viðskiptaleg staða sem skapast við þetta hlutafélag. Félagið stendur frammi fyrir því að viðskiptamenn þess geti ekki staðið í skilum og þá þarf að taka viðskiptalega ákvörðun um það, hvernig eigi að bregðast við,“ segir Bjarni Benediktsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert