Hugmyndir um ferju yfir Faxaflóann

Sumarið 2017 var gerð tilraun til ferjusiglinga milli Akraness og …
Sumarið 2017 var gerð tilraun til ferjusiglinga milli Akraness og Reykjavíkur með ferjunni Akranesi. Þessar ferðir lögðust af. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Unnið er að því hjá Akraneskaupstað að útfæra hugmyndir um að ferjusiglingar hefjist að nýju á milli Reykjavíkur og Akraness.

Boðið var upp á slíkar siglingar sumarið 2017 þegar ferjan Akranes, sem var leigð frá Noregi, sigldi þessa leið. Aðsókn var minni en áætlað hafði verið af ýmsum ástæðum; verkefnið var ekki arðbært og rekstraraðilinn hefði þurft stærra mótframlag frá sveitarfélögunum og lögðust siglingarnar af.

Núverandi hugmynd gerir m.a. ráð fyrir að um tilraunaverkefni verði að ræða sem standi í þrjú ár og kosti 60 milljónir á ári, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert