Ræddi um uppgang öfgaafla í Evrópu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra með Reykjavíkurdætrum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra með Reykjavíkurdætrum. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Uppgangur öfgaafla í Evrópu og það pólitíska umhverfi sem slík öfl hafa sprottið úr var á meðal þess sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fjallaði um í ræðu sinni á opnun alþjóðlegrar ráðstefnu á sviði kynjafræða í dag. Auk hennar tóku Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og rappsveitin Reykjavíkurdætur þátt í opnuninni. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.  

Ráðstefnan er haldin af norræna tímaritinu NORA undir yfirskriftinni; Border Regimes, Territorial Discourses and Feminist Politics og var skipulögð af RIKK – rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum, Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og EDDU – Rannsóknasetri við Háskóla Íslands.

„Bandalag öfgahægriflokka hefur valið sér marga óvini. Ráðist er gegn innflytjendum og minnihlutahópum og þeir gerðir að blórabögglum fyrir allt sem miður hefur farið í tengslum við hnattvæðingu og nýfrjálshyggju undanfarinna áratuga. Réttindum hinsegin fólks er víða ógnað, stundum í þeim tilgangi einum að ná til trúaðra kjósenda. Annað skotmark eru femínismi og kynjafræði, og kvenfrelsi almennt. Líkamar kvenna eru dregnir inn í pólitíska umræðu með hætti sem ætti að heyra sögunni til og grafið er undan fyrri sigrum í baráttu kvenna fyrir yfirráðum yfir sínum eigin líkama.“ Þetta sagði forsætisráðherrann meðal annars í ræðu sinni. 

Forsætisráðherra fjallaði jafnframt um mikilvægi þess að berjast gegn þessum öflum og bjóða almenningi upp á aðra valkosti. Alþjóðleg samvinna væri eina leiðin til að taka á stærstu áskorunum samtímans, þar á meðal loftslagsvandanum og vaxandi ójöfnuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert