Búið er að bjóða langstærstum hluta þeirra barna sem verða 18 mánaða 1. september nk. eða rúmlega fimmtán hundruð börnum pláss í leikskóla í borginni. Einungis 48 börn sem eru 18 mánaða og eldri eru á biðlista skv. nýjustu tölum.
Þetta kemur fram í bókun fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna í skóla- og frístundaráði. Lagt var fram minnisblað um stöðu innritunar í leikskóla á seinasta fundi ráðsins.
Fram kemur að byrjað er að bjóða yngri börnum pláss, sem verða 14-17 mánaða í haust, og hefur þegar rúmlega 100 börnum verið boðið í leikskóla, sem sagt meirihluta barna sem eru með umsókn á þessum aldri, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.