Úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald

mbl.is/​Hari

Þrír voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. júlí á grundvelli almannahagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi. Mennirnir voru handteknir fyrr í mánuðinum.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að þeir hafi verið handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglu. 

Rannsóknin snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.

Alls voru sjö handteknir og ráðist í níu húsleitir. Í framhaldinu voru fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald, en einum þeirra hefur nú verið sleppt út haldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert