Vilja meta áhrif veiða á afdrif kálfa

Veiðar á hreintörfum mega hefjast á mánudag.
Veiðar á hreintörfum mega hefjast á mánudag. mbl.is/Sigurður Ægisson

Veiðar á hreintörfum verða heimilaðar eftir tvo daga, eða mánudaginn 15. júlí, og verða leyfðar fram til 15. september. Veiðar á hreinkúm mega hefjast 1. ágúst og standa þær til 20. september.

Umhverfisstofnun hefur sent út tarfaleyfin til þeirra sem greitt hafa fyrir leyfið, staðist skotpróf og eru með veiðikort í gildi, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar. Segir þar að veiðileyfi fyrir kýr verði send út á næstu dögum.

Umhverfisstofnun vekur um leið athygli á því að fagráð um velferð dýra hafi beint þeim tilmælum til stofnunarinnar að veiðistjórnun og tímabil hreindýraveiða verði endurskoðuð með tilliti til velferðar hreinkálfa sem verði móðurlausir á veiðitímabilinu.

Ekki sé um að ræða neyðarástand

Í tilmælunum hafi fagráðið vísað til þess að í Noregi væri lögð áhersla á þá veiðisiðfræði að fella ekki kú frá kálfi og að helst eigi að fella kálfinn á undan kúnni, auk þess sem veiðar hefjist þar að jafnaði seinna en hér á landi. Fagráðið benti einnig á að nauðsynlegt sé að rannsóknir verði gerðar á þroska og afdrifum kálfa með tilliti til þess hvort þeir fylgi móður að vetri eða séu móðurlausir til að hægt sé að meta með vísindalegum aðferðum hver áhrif veiða séu á afdrif kálfa.

„Umhverfisstofnun hefur í samstarfi við Náttúrstofu Austurlands kynnt sér þau gögn sem fyrir liggja um lifun kálfa sem missa móður á veiðitíma. Að mati stofnunarinnar gefa gögnin ekki til kynna að um sé að ræða neyðarástand hvað varðar afdrif móðurlausra kálfa. Í ljósi þess mælti stofnunin ekki með að veiðum á kúm væri seinkað í ár en stofnunin beinir þeim tilmælum til leiðsögumanna og veiðimanna með kýrleyfi að fella fremur kýr sem eru ekki með kálf heldur en kýr sem eru með kálf fyrstu tvær vikurnar í ágúst,“ segir á vef stofnunarinnar.

„Hér á landi hefur verið óheimilt að fella kálfa frá árinu 2011 og því ekki hægt að fara að dæmi Norðmanna að fella þá en að mati Umhverfisstofnunar hefur bannið við kálfaveiðum reynst mun betur en fyrra fyrirkomulag þegar kálfar voru felldir með kúm. Umhverfisstofnun leggst aftur á móti ekki gegn því að endurskoða megi veiðistjórnun á heindýrum á grundvelli frekari rannsókna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert