Forsetahjónin á Höfn um helgina

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setti Unglingalandsmótið í gærkvöldi.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setti Unglingalandsmótið í gærkvöldi. Ljósmynd/UMFÍ

„Ég held að það sé hvergi betra að vera þjóðhöfðingi en á Íslandi,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er hann í gærkvöldi flutti ávarp við setningu Unglingalandsmóts UMFÍ sem fram fer á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.

Samkvæmt frétt á vef UMFÍ rifjaði Guðni upp að í gær voru rétt þrjú ár liðin frá því hann var settur í embætti. Hann sagði að ekki liði sá dagur sem hann hugsaði ekki til þess hversu mikill heiður honum hafi hlotnast.

„Og hvern dag finn ég líka hversu mikil ábyrgðin er sem hvílir á herðum manns. Ég þakka ykkur öllum, sem hafa sýnt mér og minni fjölskyldu velvild og hlýhug. Ég þakka öllu fólkinu í landinu,“ sagði hann og sagði líklega hvergi betra að vera þjóðhöfðingi en hér á landi.

Guðni tók þó fram að hann hafi ekki gert vísindalegan samanburð á milli landa, samkvæmt því sem fram kemur á vef UMFÍ.

Frá setningu mótsins í gær.
Frá setningu mótsins í gær. Ljósmynd/UMFÍ

Guðni ræddi jafnframt um ungmennafélagsandann og mælti með því að fólk rækti hann.

„Ég vona að þið haldið ykkar ungmennafélagsanda, ræktið hann og nýtið til góðra verka. Þegar ég segi að ykkar sé framtíðin, þá langar mig að bæta því við að okkar er framtíðin líka – okkar sem eldri erum. Mér finnst stundum eins og við séum að búa til að óþörfu kynslóðabil í okkar annars ágæta samfélagi. Þetta er unglingalandsmót. En við hin eldri erum líka hér til þess að skemmta okkur,“ sagði Guðni.

Forsetahjónin verða alla verslunarmannahelgina á Unglingalandsmóti UMFÍ en tvö barna þeirra taka þátt í mótinu.

Um 1.000 þátttakendur á aldrinum 11-18 ára taka þátt í mótinu með foreldrum sínum og forráðamönnum. Mótshaldarar áætla að alls séu um 5-6.000 manns á Höfn um helgina.

„Allt gengur glimrandi vel og er veðrið stillt og gott, sem er lang besta keppnisveðrið,“ segir í frétt UMFÍ.

Mótshaldarar áætla að alls séu um 5-6.000 manns á Höfn …
Mótshaldarar áætla að alls séu um 5-6.000 manns á Höfn um helgina. Ljósmynd/UMFÍ
Ungmennasambandið Úlfljótur heldur mótið í ár.
Ungmennasambandið Úlfljótur heldur mótið í ár. Ljósmynd/UMFÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert