Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson opnaði í dag líkamsræktarstöð í Kópavogi sem nefnist Thor´s Power Gym.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu hans.
Stöðin verður fyrir fólk á öllum aldri og ekki aðeins fyrir kraftlyftingafólk, að því er kom fram í viðtali Fréttablaðsins við hann.
Náttúrusteinar og önnur aflraunatæki verða á staðnum, sem opnaði í dag.
Hafþór Júlíus, oft kallaður Fjallið, keppir í aflraunakeppni á morgun sem hefst fyrir austan fjall og lýkur í Reiðhöllinni í Víðidal.