Flokka rusl í niðamyrkri fyrir norðan

Plastið flokkað. Vikuskammtur á leið í endurvinnslu hjá Borgarbíói.
Plastið flokkað. Vikuskammtur á leið í endurvinnslu hjá Borgarbíói.

„Ef fólk sem rekur bíó getur flokkað rusl í niðamyrkri þá geta allir það,“ segir Guðrún Karítas Finnsdóttir, sýningarstjóri hjá Borgarbíói á Akureyri.

Starfsmenn Borgarbíós hófu nýlega að flokka allt sorp sem fellur til í bíóinu. Þeir hafa komið fyrir átta flokkunartunnum og hvetja bíógesti til að láta ekki sitt eftir liggja. Guðrún Karítas segir að starfsfólkið hafi um nokkurt skeið flokkað sjálft rusl en nýlega var farið að flokka einnig ruslið úr sölum kvikmyndahússins. „Þetta er rosalegt magn. Við höfum lengi flokkað poka utan af nachosi, sósum og fleiru. Svo settum við tunnur inn í sal og fyrst um sinn nýttu sér ekki margir það. En eftir að við settum auglýsingu á skjáinn rétt áður en myndin hefst þar sem við hvetjum fólk til að flokka þá tóku margir við sér. Konurnar sem þrífa eru líka flokkunarsjúkar eins og ég og hjálpa okkur við þetta.“

Helmingi minna sorp en áður

Guðrún segir að um það bil þrír stórir ruslapokar með plasti séu sendir í endurvinnslu í viku hverri og umfang almenna sorpsins hafi samfara þessu minnkað umtalsvert. „Það er örugglega helmingi minna en áður, enda er til dæmis hægt að stafla glösum þegar búið er að taka lokin og rörin frá,“ segir hún.

„Það eru allir á Akureyri duglegir að flokka ruslið sitt og við viljum endilega að fleiri fyrirtæki bætist í hópinn,“ segir Guðrún Karítas í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert