Ökumaður og farþegi í bifreið hans, sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af aðfaranótt sunnudags, reyndust vera með mikið magn af lyfseðilsskyldum lyfjum bæði í bifreiðinni og á sér.
Í bílnum voru sterk verkjalyf, svefnlyf og róandi lyf. Fólkið var handtekið og fært til skýrslutöku á lögreglustöð, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Leikur grunur á að lyfin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar en málið er í rannsókn hjá lögreglu.