Vegagerðarappið verður lagt niður

Vegfarendur nota fremur vef en app til að fá upplýsingar.
Vegfarendur nota fremur vef en app til að fá upplýsingar. mbl.is/​Hari

Vegagerðarappið verður lagt niður þar sem notkun þess stóðst engan veginn væntingar og kostnaður er töluverður.

„Bæði er nokkur kostnaður við rekstur appsins og einnig við óhjákvæmilega áframhaldandi þróun til að viðhalda því. Notendur kjósa frekar að nota vef Vegagerðarinnar fyrir þessar upplýsingar,“ segir í frétt á vegagerdin.is.

Fyrir nokkrum árum bjuggu nokkrir háskólanemar til app (smáforrit) fyrir Vegagerðina. Appinu var ætlað að miðla upplýsingum í snjalltæki vegfarenda um færð á vegum, vegalengdir o.fl. Notkun á þessu appi hefur því miður ekki verið mikil að mati Vegagerðarinnar. Rekstur þess kosti töluverðar upphæðir því reka þarf sérstakar þjónustur til að fæða appið á upplýsingum. Þá liggi fyrir að leggja þyrfti í töluverða vinnu til að viðhalda appinu ef nota ætti það lengur.

Þegar horft er til notkunar sé engan veginn forsvaranlegt að halda rekstri áfram. Því hafi verið ákveðið að afleggja appið og mun það smám saman hverfa úr umferð. Fyrst lokast fyrir nýjar uppsetningar en þegar frá líður hverfur appið alfarið úr tækjum notenda og viðkomandi þjónustur hætta að senda frá sér upplýsingar. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert