Laus hundur beit konu

Konan koma á lögreglustöðuna í Keflavík og tilkynnti að hún …
Konan koma á lögreglustöðuna í Keflavík og tilkynnti að hún hefði verið bitin af hundi. mbl.is/Eggert

Kona kom á lögreglustöðina í Keflavík í fyrradag og tilkynnti að hún hefði verið bitin af hundi. Hafði hún verið með sinn hund á göngu þegar laus hundur kom aðvífandi og ruku hvuttarnir svo saman. 

Lausi hundurinn beit konuna sem leitaði til læknis þar sem bitsárið var saumað og henni gefin stífkrampasprauta, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Þá varð umferðaróhapp á Rósaselstorgi í Keflavík þegar ökumaður ók á annan bíl. Ekki urðu slys á fólki en ökumaðurinn umræddi er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert