Stofna rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum

Drífa Snædal og Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
Drífa Snædal og Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Alþýðusamband Íslands og BSRB hafa ákveðið að setja á fót rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála.

Norræn heildarsamtök á vinnumarkaði starfrækja mörg hver slíkar stofnanir og er því sérstakt ánægjuefni að íslenska verkalýðshreyfingin stígi nú þetta stóra skref. En ekki eru fordæmi fyrir því hér á landi að samtök launafólks standi að stofnun rannsóknarseturs á borð við þetta, að því er segir í sameiginlegri tilkynningu.

Tilgangurinn er að bæta þekkingu á lífsskilyrðum launafólks og brúa bilið milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum. Hún verður þverfagleg og sjálfstæð í sínum störfum.

Til að skapa rannsóknarstofnuninni rekstrargrundvöll tryggja ASÍ og BSRB sameiginlega fjármagn og aðstöðu undir reksturinn. Vonir standa til þess að stofnunin hefji starfsemi sem fyrst, að því er segir í tilkynningunni.

„Það er von mín að með nýrri rannsóknarstofnun fáum við betri upplýsingar um stöðu vinnandi fólks og hvernig bæta megi hag almennings. Það skiptir miklu máli að búa til og miðla þekkingu á okkar eigin forsendum,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, í tilkynningunni.

„Félagar okkar á hinum Norðurlöndunum hafa byggt upp sambærilegar rannsóknarstofnanir með góðum árangri sem hefur stuðlað að bættri þekkingu á vinnumarkaðsmálum. Því er fagnaðarefni að þetta verði loks að veruleika hér á landi. Það er brýnt að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðsmála og hér leggjum við grunninn að mikilvægari stofnun," segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert