Yfir 8 stiga frost í nótt

Kort/Veðurstofa Íslands

Í nótt var kalt á norðaustanverðu landinu og mældist mest 8,3 stiga frost á Staðarhóli í Aðaldal og 8,2 stiga frost á Brú á Jökuldal. Spáð er hvassviðri í dag og á morgun.

Nú er lægð suðvestur af landinu sem dýpkar smám saman og veldur vaxandi vindi hjá okkur í dag og á morgun. Í dag er útlit fyrir austanstrekking, þó ber að taka fram að vindur verður yfirleitt hægari á Norðurlandi. Á morgun verður hins vegar allhvass vindur algengur, en viðbúið að slái í storm sunnanlands og má í því sambandi helst nefna syðsta hluta landsins undir Mýrdals- og Eyjafjallajökli og einnig við Öræfajökul. Úrkoma í dag og á morgun verður einkum bundin við sunnan- og austanvert landið, en Norður- og Vesturland sleppa við hana að mestu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Hann segir að nú færist mildari loftmassi yfir landið og sú staðreynd ásamt blöndun í neðstu loftlögum í austanvindinum ætti að tryggja það að næturfrostið sé úr sögunni í bili. Þegar kemur fram á morgundaginn verður hitinn farinn að dansa kringum 10 stigin á vestanverðu landinu.
Vindur fer síðan að minnka á miðvikudag og styttir upp, þá kveður áðurnefnd lægð okkur og heldur til Bretlandseyja.

Veðurhorfur næstu daga

Austan 5-15 m/s í dag, en 13-23 á morgun, hvassast sunnanlands. Rigning með köflum um landið sunnan- og austanvert, en úrkomulítið á Norður- og Vesturlandi, Hiti 3 til 8 stig í dag, en 5 til 10 á morgun.

Á þriðjudag:

Austan 13-18 m/s, en 18-23 með suðurströndinni. Þurrt að mestu um landið norðan- og vestanvert, en rigning sunnan- og austanlands. Hiti 5 til 10 stig.

Á miðvikudag:
Austan 8-13, en 13-18 suðaustanlands. Þurrt að kalla á landinu, en rigning fyrir hádegi á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:
Norðaustan 8-15. Skýjað en úrkomulítið norðan- og austanlands, en léttskýjað sunnan heiða. Hiti 2 til 7 stig.

Á föstudag og laugardag:
Fremur hæg breytileg átt. Yfirleitt úrkomulaust á landinu og bjart á köflum. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn, en líkur á næturfrosti.

Á sunnudag:
Vaxandi sunnanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands. Hlýnar smám saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert