Það var mikið um dýrðir í höfuðstöðvum K100 í morgun. Haraldur Johannessen ritstjóri Morgunblaðsins og Kristinn Bjarnason framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota drógu út forláta Toyota Corolla bifreið í áskriftarleik Morgunblaðsins. Það var Ágústa Elín Ingþórsdóttir sem hreppti hnossið og getur hún valið á milli þriggja mismunandi tegunda af nýjustu árgerð á farartækinu.
Kristinn Bjarnason segir að Toyota Corolla sem kom á markaðinn árið 1966 sé mest seldi bíll í heimi en síðan þá hafa 46 milljónir bíla verið seldar. „Við vorum að setja á markað 12. kynslóð af Toyotu Corollu en þetta módel er með þeim glæsilegri,“ sagði Kristinn meðal annars við útdráttinn. Nýju Corollu-bílarnir koma í þremur mismunandi útgáfum og tæknimenn Toyota hugsa sannarlega um umhverfisvernd því hægt er fá allar útgáfur Corolla-bílanna með hybrid-möguleika.
Sjá má útdráttinn sem fór fram í þættinum Ísland vaknar í spilaranum hér að neðan.