Björguðu rúmlega 1.300 flóttamönnum

Á þessum tæpu þremur mánuðum hafa áhafnir flugvélarinnar stuðlað að …
Á þessum tæpu þremur mánuðum hafa áhafnir flugvélarinnar stuðlað að björgun rúmlega 1.300 flóttamanna á Miðjarðarhafi. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, er komin heim til Íslands eftir langt og strangt úthald á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópu. Vélinni var flogið til Malaga á Spáni 30. júlí og hafa áhafnir Landhelgisgæslunnar skipst á að sinna eftirlitinu sem fram fer á Miðjarðarhafi.

Vélin fór í alls 42 flug meðan á verkefninu stóð.
Vélin fór í alls 42 flug meðan á verkefninu stóð. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Á þessum tæpu þremur mánuðum hafa áhafnir flugvélarinnar stuðlað að björgun rúmlega 1.300 flóttamanna á Miðjarðarhafi, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 

Eftirlitið hefur jafnframt leitt til þess að mikið magn fíkniefna hefur verið gert upptækt. Vélin fór í alls 42 flug á meðan verkefninu stóð, segir enn fremur.  

„Í byrjun ágústmánaðar urðu stýrimenn vélarinnar varir við meinta smyglara sem voru með 66 flóttamenn um borð um miðja nótt. Fólkinu var komið fyrir í hriplekum gúmmíbáti og að lokum endaði hluti hópsins í sjónum. Á meðan flaug flugvél Landhelgisgæslunnar yfir, kom auga á fólkið sem var í lífshættu, og gerði spænskum yfirvöldum viðvart.

Um mánaðamótin hefst langþráð uppfærsla á eftirlitsbúnaði flugvélarinnar.
Um mánaðamótin hefst langþráð uppfærsla á eftirlitsbúnaði flugvélarinnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Þyrla var send á vettvang og öllum bjargað úr háska. Ef áhöfnin á TF-SIF hefði ekki komið auga á fólkið er ljóst að illa hefði geta farið,“ segir Gæslan. 

Þá kemur fram að um mánaðamótin muni langþráð uppfærsla á eftirlitsbúnaði flugvélarinnar hefjast en vonir eru bundnar við að henni verði lokið um eða eftir áramótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert