Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð um helgina játaði neyslu á amfetamíni. Jafnframt var hann með amfetamín í fórum sínum sem hann sagði vera um 15 grömm.
Farþegi í bílnum reyndist vera með meint amfetamín falið í augnskuggaboxi og jafnframt e-töflur. Þá fundust áhöld til fíkniefnaneyslu, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Annar ökumaður var tekinn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sýnatökur á lögreglustöð gáfu til kynna neyslu á amfetamíni. Umræddur ökumaður reyndist vera án ökuréttinda.