Þrjú tilboð innan kostnaðaráætlunar

Tilboðin verða yfirfarin af Framkvæmdasýslu ríkisins og í framhaldinu verður …
Tilboðin verða yfirfarin af Framkvæmdasýslu ríkisins og í framhaldinu verður ákvörðun tekin um hvaða tilboði verður tekið. mbl.is/Ófeigur

Tilboð í jarðvegsframkvæmdir vegna nýbyggingar Alþingis við Vonarstræti voru opnuð hjá Ríkiskaupum í dag. Verkið var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu 12. september og bárust fjögur tilboð frá innlendum aðilum. Þrjú tilboðanna voru innan kostnaðaráætlunar.

Tilboðin verða yfirfarin af Framkvæmdasýslu ríkisins og í framhaldinu verður ákvörðun tekin um hvaða tilboði verður tekið. Áætlað er að jarðvegsframkvæmdir hefjist í nóvember, að því er segir í tilkynningu frá Alþingi. 

Þá segir, að nú sé verið að fara yfir tilboð á vinnu við að setja steinklæðningu á ytra byrði byggingarinnar. Útboð fyrir vinnu við aðalbygginguna og tengiganga verða auglýst í júní 2020 og er gert ráð fyrir að uppsteypa byggingarinnar hefjist í september sama ár.

Verklok eru áætluð í mars 2023, segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert