Selasetrið fær evrópsk verðlaun

Úr skoðunnarferð á vegum Selasetursins með Brimli HU 18.
Úr skoðunnarferð á vegum Selasetursins með Brimli HU 18. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Selasetrið á Hvammstanga hlaut fyrstu verðlaun Evrópusamtaka fyrirtækja og þjónustuaðila í menningartengdri ferðaþjónustu (ECTN) í síðustu viku. Samtökin veita árlega viðurkenningar í nokkrum flokkum og hlaut Selasetrið verðlaunin ásamt Batana-umhverfisssafninu í Króatíu í flokki óáþreifanlegrar arfleifðar.

Sigurður Líndal Þórisson, framkvæmdastjóri Selasetursins, segir að viðurkenning sem þessi skipti miklu máli fyrir starfsemina og starfsmenn séu stoltir af þessum árangri. „Raunverulega snýst viðurkenningin ekki síst um þá hugmynd heimafólks að setja á stofn selasetur. Starfsemin er rekin í þágu samfélagsins á svæðinu og í þágu vísindanna og við höfum ávinning samfélagsins að leiðarljósi,“ segir Sigurður í umfjöllun um verðlaunaveitinguna í Morgunblaðinu í dag.

Hann var í gær staddur á ferðakaupstefnu í London og sagði að margir kæmu til hans, klöppuðu honum á bakið og óskuðu til hamingju með verðlaunin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert