Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd til að fjalla um menntun hjúkrunarfræðinga og gera tillögur um aðgerðir sem leitt geta til þess að fleiri útskrifist með hjúkrunarfræðimenntun. Nefndinni er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. mars næstkomandi.
Á fundi ráðherranefndar um samræmingu mála 15. ágúst síðastliðinn kynnti heilbrigðisráðherra tillögur sínar um starfshópa til að fjalla um menntunarmál heilbrigðisstétta. Á fundinum voru einnig rædd áform um samstarf heilbrigðisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis á þessu sviði, meðal annars með stofnun starfshóps eins og hér um ræðir varðandi menntun hjúkrunarfræðinga, að því er segir í tilkynningu á Stjórnarráðsins.
Formaður starfshópsins er Vilborg Ingólfsdóttir, skipuð af heilbrigðisráðherra. Aðrir nefndarmenn eru:
Starfsmaður hópsins er Brynhildur Magnúsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Þess má geta að heilbrigðisráðherra skipaði fyrir skömmu starfshóp sem kanna á stöðu framhaldsmenntunar lækna hér á landi og koma með tillögur að því hvernig tryggja megi nægilegt framboð lækna með framhaldsmenntun svo unnt sé að manna íslenska heilbrigðiskerfið til framtíðar. Sá hópur var skipaður 17. október síðastliðinn og á að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 10. janúar næstkomandi, segir ennfremur í tilkynningunni.